Menningarmiðstöð í Varmhlíð í Skagafirði

Það kemur mér kannski ekki við og þó. Ég rakst á smá frétt í Morgunblaðinu í liðinni viku þar sem sagt var frá fyrirhugaðri menningarmiðstöð  i Varmahlíð.  Gott mál, nema í fréttinni kom fram að hætt væri við að hafa lyftu í húsinu sem verður 2. hæðir.

Þá vakna nokkrar spurningar.

  • Eru engir í Skagafirði sem þurfa að nota lyftu til að komast á milli hæða?
  • Verður það sem gerist á annari hæðinni svo ómerkilegt að það tekur því ekki fyrir þá sem þurfa að nota lyftu að fara þangað?
  • Eru engir gamlir eða fatlaðir í Skagafirði sem þurfa að nota lyftu?
  • Hvað með þá sem koma annarsstaðar frá og vilja skoða húsið og njóta þess sem þar er?
  • Verða kannski nokkrir fílelfdir stöðugt í húsinu til að bera fólk á milli hæða?

Satt að segja er ég mjög hissa á þessu, ég hélt að lyfta í opinberum byggingum væri staðalbúnaður og að það þyrfti ekki að ræða hvort hún ætti að vera einungis hvar. 


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband